Ármann Kr. Ólafsson aðstoðarmaður fjármálaráðherra hefur ákveðið að láta af störfum síðar í þessum mánuði, segir í fréttatilkynningu.

Þar kemur fram að Ármann hefur gegnt starfi aðstoðarmanns í rúm ellefu ár, fyrst hjá Halldóri Blöndal þáverandi samgönguráðherra og síðan hjá Árna M. Mathiesen í sjávarútvegs- og fjármálaráðuneytinu.

Við starfi Ármanns tekur Böðvar Jónsson, viðskiptafræðingur og formaður bæjarráðs í Reykjanesbæ.