Arnar Má Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs Atorku Group en hann hefur starfað sem sérfræðingur í fjárfestingarverkefnum Atorku.

Arnar er löggiltur endurskoðandi og hefur reynslu af störfum sem endurskoðandi auk þess að hafa komið að ýmsum fyrirtækja- og fjárfestingaverkefnum.  Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.