Um 59% Íslendinga eru jákvæðir gagnvart viðskiptabanka sínum og bera tæp 50% traust til bankans og um 56% jákvæðir gagnvart tryggingafélaginu og bera 49% traust til þess, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem markaðsrannsóknafyrirtækið MMR gerði fyrir Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) í júní. Árið 2010 bar hinsvegar einungis þriðjungur landsmanna traust til viðskiptabankans og tryggingafélagsins.

Fram kemur í könnuninni að sama þróun er staðfest þegar spurt er um fjármálageirann í heild sinni. Um 10% eru mjög eða frekar jákvæðir gagnvart fjármálafyrirtækjum almennt en hlutfallið var einungis um 3% árið 2010. Um 37% sögðust vera bæði jákvæðir og neikvæðir gagnvart geiranum. Ríflega 9% bera traust til fjármáfyrirtækja hér á landi sem er mikið stökk frá fyrri árum, en hlutfallið var einungis 3% árið 2010. Um 36% bera hvorki mikið né lítið traust til fjármálafyrirtækja almennt.

SFF hafa kannað afstöðu fólks til fjármálafyrirtækja á undanförnum árum. Könnunin í ár sýnir að Íslendingareru til muna jákvæðari nú en á undanförnum árum gagnvart þeim viðskiptabönkum og tryggingafélögum sem þeir eiga í viðskiptum við. Þannig var hlutfall þeirra sem voru mjög eða frekar jákvæðir gagnvart viðskiptabanka sínum 39% árið 2010 og hlutfall þeirra sem voru jákvæðir gagnvart sínu tryggingafélagi tæplega 42%.

Könnunin var gerð dagana 13. til 18. júní. Um er að ræða netkönnun sem MMR stóð að og var úrtakið Íslendingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR og svöruðu 912 einstaklingar spurningunum í könnuninni.