Davíð Steinn Davíðsson hefur verið ráðinn í starf sérfræðings hjá Arev verðbréfum og hefur þegar hafið störf.
Davíð Steinn útskrifaðist frá International School of Luxembourg með International Baccalaureate Diploma vorið 2003 og lauk BA-námi í frönsku og hagfræði frá Háskóla Íslands sl. vor.

Hann vann sem sérfræðingur í Greiningardeild Landsbankans 2005-2006 og vann í Sjanghæ í Kína á skrifstofu bandaríska fyrirtækisins International Flavors and Fragrances sumarið 2005. Með starfi sínu kennir Davíð Steinn dæmatíma í tölfræði við Háskólann í Reykjavík.