Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri félags fasteignasala, segir marga bíða eftir úrræðum vegna skuldavanda heimilanna og bíði því með að selja.

Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbankanum, telur þann hóp ekki vera stóran sem sé að bíða eftir slíkum úrræðum. Hann segir hinsvegar að ef af skuldaniðurfellingu verður gæti eftirspurn aukist og verð hækkað.