Aðalsteinn E. Jónasson, forstöðumaður lögfræðisviðs Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka, hefur ákveðið að láta af störfum hjá bankanum, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Ekki kemur fram í tilkynningunni hvort að nýr starfsmaður hafi verið ráðinn til að taka við af Aðalsteini.