Icelandic Group og Dr. Norbert Engberg, framkvæmdastjóri dótturfélaganna Pickenpack H&H og Pickenpack Gelmer SAS, hafa gert með sér samkomulag um að Dr. Engberg láti af störfum, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Dr. Engberg tók við stöðunni í maí 2006.

Ákvörðun hefur verið tekin að Finnbogi Baldvinsson, framkvæmdastjóri Icelandic Europe, og Wolfgang Kohls, framkvæmdastjóri Pickenpack H&H, muni í framhaldinu mynda tveggja manna framkvæmdastjórn fyrirtækisins.