Á aðalfundi Samorku var Franz Árnason, Norðurorku, kjörinn formaður stjórnar og tekur hann við formennsku af Friðrik Sophussyni, Landsvirkjun, segir í frétta tilkynningu.

Þórður Guðmundsson, Landsneti, kemur nýr í stjórn í stað Kristjáns Haraldssonar, Orkubúi Vestfjarða. Kristján er varamaður í nýrri stjórn og kemur þar inn í stað Páls Pálssonar, Skagafjarðarveitum.

Ný stjórn á að öðru leyti eftir að skipta með sér verkum en hana skipa nú:

Ásgeir Blöndal, Selfossveitum
Franz Árnason, Norðurorku, formaður
Friðrik Sophusson, Landsvirkjun
Guðmundur Þóroddsson, Orkuveitu Reykjavíkur
Júlíus Jónsson, Hitaveitu Suðurnesja
Tryggvi Þór Haraldsson, Rarik
Þórður Guðmundsson, Landsneti
Varamenn:

Dagur Jónsson, Vatnsveitu Hafnarfjarðar
Hreinn Hjartarson, Orkuveitu Húsavíkur
Kristján Haraldsson, Orkubúi Vestfjarða