Guðni B. Guðnason tekur við stöðu framkvæmdastjóra apótekakeðjunnar Lyf & heilsu þann 1.október og mun Hjalti Sölvason láta af störfum hjá félaginu á sama tíma og snúa sér að verkefnum á vegum Milestone, móðurfélags Lyfja & heilsu, segir í tilkynningu félagsins.
Samtímis munu skipulagsbreytingar eiga sér stað. Þær eru fólgnar í að systurfélög Lyfj & heilsu munu verða sameinuð undir stjórn nýs framkvæmdastjóra. Systurfélög Lyfja & heilsu eru:
DAC, innflutnings og dreifingarfyrirtæki á lyfjum,
L&H Optic, sem rekur 6 gleraugnaverslanir
Flexor, smásala og göngugreining
Nýtt félag mun því reka 36 smásölverslanir sem allar tengjast lyfjum og heilbrigðismálum. Að auki mun fyrirtækið í auknu mæli flytja inn og dreifa eigin vörum.
Guðni er 45 ára og hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra ANZA hf. síðastliðin níu ár eða allt frá stofnun. Guðni var einn af stofnendum Álits sem var forveri ANZA sem sérhæfir sig í rekstri tölvukerfa.
Með ráðningu Guðna verður hann einn af lykilstjórnendum Milestone samstæðunnar og mun taka virkan þátt í mótun ákvarðanatöku um framtíðarstefnu hennar, segir í tilkynningunni.