Gunnlaugur M. Sigmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins Máttar, segir í fréttatilkynningu. Fjárfestingarfélagið Máttur er í eigu Sjóvár og Glitnis sem eiga 47,5% hvort félag auk þess sem Gunnlaugur hefur keypt 5% í félaginu.

Gunnlaugur, sem er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, var forstjóri Kögunar þangað til í október 2006. Hann var alþingismaður fyrir Vestfjarðarkjördæmi 1995-1995 og forstjóri Þróunarfélags Íslands 1986-1993. Hann var forstjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins árið 1985, starfsmaður Alþjóðabankans í Washington DC á árunum 1982 til 1984 og fulltrúi og síðar deildarstjóri í Fjármálálaráðuneytinu frá 1974 til 1982.

Gunnlaugur hefur víðtæka reynslu af fjárfestingum bæði á Íslandi og erlendis og hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja. Hann er stjórnarformaður í eignarhaldsfyrirtækinu Hands Holding hf sem er með starfsemi í sex löndum, stjórnarformaður Eignarhaldsfélagsins Teton ehf og Malbikunarstöðvarinnar Hlaðbær Colas hf, auk fyrirtækjanna Landsteinar-Strengur, HugurAX, Hands í Noregi, Aston Baltic í Lettlandi, SCS í Kaliforniu og Opin Kerfi ehf og Opin Kerfi Group hf á Íslandi.

Það er stefna Máttar að auka verðmæti eigenda sinna með fjárfestingum í skráðum og óskráðum hlutabréfum, bæði í eigin verkefnum og í samstarfi við aðra fjárfesta, segir í tilkynningunni. Meðal eigna Máttar má nefna 11,1% hlut í Icelandair, 12,2% hlut í BNT og er leiðandi fjárfestir í Kcaj sem er breskt félag sem fjárfestir einkum í smásölurekstri þar í landi. Eigið fé Máttar í dag er ríflega 3,6 milljarðar og hafa eigendur félagsins skuldbundið sig til að auka eigið fé enn frekar.