Haraldur Ingi Birgisson hefur verið ráðinn sem lögfræðiráðgjafi hjá Viðskiptaráði Íslands. Haraldur mun ljúka meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík í vor. Hann hefur áður starfað hjá Landsbankanum og Sparisjóði Kópavogs.

Davíð Þorláksson, sem verið hefur lögfræðingur Viðskiptaráðs frá 2005, hefur horfið til annarra starfa hjá nýjum fjárfestingabanka, Askar Capital hf., sem er að stærstum hluta í eigu Milestone. Áður en hann gekk til liðs við Viðskiptaráð starfaði hann m.a. hjá Íbúðalánasjóði segir í tilkynningu.