Í dag urðu forstjóraskipti hjá Borgun hf. (áður Kreditkort hf.) sem er helsti samstarfsaðili MasterCard á Íslandi. Haukur Oddsson tekur við af Ragnari Önundarsyni sem hefur verið forstjóri félagsins í rúm níu ár. Haukur var framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Glitnis á Íslandi þar til síðastliðið vor og hefir langan starfsferil að baki í íslensku bankakerfi.

Framundan eru breytingar í kortastarfsemi MasterCard á Íslandi sem kalla á nýja stefnu og starfshætti og metur Ragnar það svo að heppilegra sé að hann snúi sér að öðrum verkefnum á þessum tímamótum og mun því láta af störfum hjá félaginu um næstu áramót.

Haukur Oddsson hefur verið ráðinn forstjóri í stað Ragnars og tekur þegar til starfa. Haukur var framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Glitnis þar til s.l. vor og hefur langan starfsferil að baki í bankakerfinu. Haukur er rafmagnsverkfræðingur og tölvunarfræðingur frá H.Í. og tölvuverkfræðingur frá Danmarks Tekniske Universitet.