Helgi Jóhannesson, framkvæmdastjóri Norðurmjólkur, hefur verið ráðinn umdæmisstjóri VÍS á Norðurlandi. Hann tekur við nýju starfi umdæmisstjóra 1. janúar 2007, segir tilkynningu.

Umdæmisskrifstofa VÍS á Norðurlandi er á Akureyri og heyra undir hana svæði allt frá Hvammstanga til Þórshafnar. Alls eru 10 skrifstofur í umdæminu.

Helgi hefur starfað sem framkvæmdastjóri Norðurmjólkur ehf. frá ársbyrjun 2001. Þar áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri Norðlenska í eitt ár og framkvæmdastjóri kjötiðnaðarsviðs KEA frá 1997 ? 2000. Hann lauk BSc prófi frá Odense Teknikum árið 1985 og MSc í verkfræði frá Alborg Universitet árið 1987.

Hann hefur setið í stjórnum hinna ýmsu félaga í gegnum tíðina. Þar á meðal sat hann í stjórn Vátryggingafélags Íslands frá árinu 2002 ? 2004, Líftryggingafélagi Íslands frá 2004 ? 2005 og Verði frá 2004 ? 2006.