Inga Jóna Friðgeirsdóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Brims hf í Reykjavík. Undir verksvið hennar fellur sala á öllum afurðum Brims hf og útgerð skipa Brims. Jafnframt mun hún stýra áfram Laugafiski hf en hún hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Laugafisks frá árinu 2004 segir í frétt á heimasíðu Brim.

Inga Jóna er með BS gráðu í útflutningsmarkaðsfræði frá Tækniháskóla Íslands og alþjóðlega MBA gráðu frá Háskóla Reykjavíkur.