Kjartan Þór Þórðarson hefur verið skipaður framkvæmdastjóri Sagafilm ehf. Kjartan Þór tekur við af Kristjáni Grétarssyni sem gengt hefur starfinu frá 2005 segir í tilkynningu.

Þar kemur fram að Kjartan Þór hefur víðtæka reynslu á sviði kvikmynda-, sjónvarps- og auglýsingaframleiðslu. Að undanförnu hefur hann verið einn af stjórnendum hjá dótturfélagi Sagafilm, breska kvikmyndagerðarfyrirtækinu 2AM films, sem starfrækt er í Bretlandi. 2AM films hefur sérhæft sig á sviði auglýsingagerðar en nýverið var stofnuð deild til framleiðslu á sjónvarpsefni og hefur sú deild nú þegar í þróun nokkur stór verkefni fyrir BBC.

Áður var Kjartan Þór m.a. framkvæmdastjóri Storm ehf. sem sameinaðist Sagafilm árið 2005.

Kjartan Þór hefur störf á næstu dögum.