Kjartan Steinsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs Vistor hf. samkvæmt tilkynningu.

Kjartan ber ábyrgð á fjármálum félagsins, þar með talinn rekstur fjármála-, þjónustu- og upplýsingatæknideildar. Kjartan er 42 ára viðskiptafræðingur frá HÍ og hefur yfir 15 ára reynslu af fjármála- og rekstrarstörfum. Hann starfaði á árunum 1997 ? 2006 sem fjármálastjóri Ásbjörns Ólafssonar ehf. og sem framkvæmdastjóri BÍF á árunum 1992-1997. Kjartan er kvæntur Magndísi M. Sigurðardóttur og eiga þau tvö börn.