Kristján Már Unnarsson fréttamaður hefur verið ráðinn varafréttastjóri Stöðvar 2, segir í tilkynningu. Kristján Már tekur við starfinu af Þóri Guðmundssyni sem þegar hefur tekið við starfi ritstjóra fréttavefsins visir.is. Þórir verður áfram í ritistjórn Kompáss.

Kristján Már hefur starfað sem fréttamaður á Stöð 2 frá 1988 en hann hóf fjölmiðlaferil sinn á Dagblaðinu 1980.