Ný stjórn var kjörin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf. á hluthafafundi síðastliðinn föstudag, að því er fram kemur í tilkynningu flugstöðvarinnar.

Í nýkjörinni stjórn FLE ohf. eru: Jón Gunnarsson formaður, Ellert Eiríksson varaformaður, Magnea Guðmundsdóttir meðstjórnandi, Rannveig Guðmundsdóttir meðstjórnandi og Sigrún Jónsdóttir meðstjórnandi. Varastjórnarmenn eru Björk Guðjónsdóttir og Einar Örn Einarsson.

Jón Gunnarsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Einar Örn Einarsson hafa ekki áður setið í stjórn eða varastjórn FLE ohf. en Ellert Eiríksson, Magnea Guðmundsdóttir og Björk Guðjónsdóttir sátu í fráfarandi stjórn félagsins.

Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf. starfar samkvæmt sérstökum lögum um stofnun hlutafélags um rekstur fyrirtækisins frá árinu 2000. Félagið er í eigu ríkisins og utanríkisráðherra fer með hlut ríkisins í því.