Geir Valur Ágústsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Air Atlanta Icelandic og Stefán Eyjólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri starfsmannamála Air Atlanta Icelandic að því er segir í tilkynningu félagsins.

Geir Valur hefur unnið hjá Heklu síðustu fjögur árin bæði sem fjármálastjóri og framkvæmdastjóri Bílasviðs. Áður hafði Geir Valur unnið í 15 ár hjá endurskoðunarfyrirtækinu KPMG, meðal annars sem svæðisstjóri Austurlands og meðeigandi síðan 1997. Geir Valur er útskrifaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og er löggiltur endurskoðandi.

Stefán Eyjólfsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri starfsmannamála hjá Air Atlanta Icelandic. Stefán var framkvæmdastjóri Íslandsferða frá 2004 til 2006 og framkvæmdastjóri Kynnisferða frá árinu 2002. Áður hafði Stefán unnið 11 ár hjá Icelandair, meðal annars sem svæðisstjóri í Bretlandi, og stýrt tekjustýringu og áætlanagerð. Stefán er útskrifaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.

Hannes Hilmarsson, forstjóri Air Atlanta Icelandic segir í tilkynningunni: "Geir Valur og Stefán koma með mikla reynslu og þekkingu til félagins og ég býð þá velkomna til starfa."