Exista hefur gengið frá ráðningu Guy Green sem yfirlögfræðings félagsins, segir í fréttatilkynningu. Green var áður meðeigandi (e.corporate partner) hjá alþjóðlega lögfræðifyrirtækinu Eversheds í Bretlandi. Hann mun stýra lögfræðilegum verkefnum Exista frá skrifstofu félagsins í Lundúnum.

Guy Green hefur víðtæka reynslu á sviði lögfræðiráðgjafar fyrir fyrirtæki. Í starfi sínu hjá Eversheds hefur Guy veitt fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum lögfræðilega ráðgjöf við fjárfestingar og fyrirtækjakaup, einkum á Bretlandseyjum. Hann hefur meðal annars starfað með Exista og Bakkavör að ýmsum verkefnum á undanförnum sex árum.

Guy Green mun taka sæti í framkvæmdastjórn Exista, sem skipuð er Lýð Guðmundssyni starfandi stjórnarformanni, Sigurði Valtýssyni og Erlendi Hjaltasyni forstjórum félagsins og framkvæmdastjórunum Ásmundi Tryggvasyni, Bjarna Brynjólfssyni, Guðrúnu Þorgeirsdóttur, Sigurði Nordal og Sveini Þór Stefánssyni.