Þórður Pálsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Kaupþings banka samstæðunnar, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Þórður hefur gengt starfi forstöðumanns greiningardeildar Kaupþings banka síðan 1999. Um er að ræða nýtt starf sem heyrir beint undir skrifstofu forstjóra Kaupþings banka.

Við starfi Þórðar tekur dr. Ásgeir Jónsson, lektor við Háskóla Íslands, og starfsmaður greiningardeildar Kaupþings banka.