Þorvaldur Þorsteinsson hefur verið ráðinn sjóðstjóri hjá Íslenskum verðbréfum, að því er fram kemur í tilkynningu.

Þorvaldur er fæddur árið 1979. Hann lauk stúdentsprófi af hagfræðibraut frá Verkmenntaskólanum á Akureyri árið 1999 og B.Sc. prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2002.

Að loknu námi starfaði Þorvaldur sem sölustjóri hjá Verði Vátryggingafélag ehf og síðan sem viðskiptastjóri hjá Verði Íslandstryggingu hf.

Eiginkona Þorvaldar er Guðrún Hildur Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og eiga þau tvo syni.