FL Group hefur ráðið Örvar Kærnested í stöðu framkvæmdastjóra fjárfestingasviðs FL Group (e. private equity and strategic investments), segir í tilkynningu, en hann var áður aðstoðarframkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings banka.

Í tilkynningunni segir að Örvar hefur mikla reynslu á þessu sviði, bæði hérlendis og á alþjóðlegum vettvangi, en hann hefur starfað hjá Kaupþingi undanfarin átta ár og tekið stóran þátt í uppbyggingu fyrirtækjaráðgjafar bankans. Örvar mun starfa á skrifstofu FL Group í London.

Samhliða ráðningu Örvars hefur Jón Sigurðsson verið ráðinn aðstoðarforstjóri FL Group en áður gegndi Jón stöðu framkvæmdastjóra fjárfestingasviðs félagsins. Jón mun vinna að stefnumótun og rekstri félagsins ásamt því að taka þátt í fjárfestingaverkefnum þess, sérstaklega á sviði fjármálafyrirtækja, segir í tilkynningunni.