Norðurál ehf., dótturfélag Century Aluminum, hefur tilkynnt um skipulagsbreytingar sem spegla nýjar áherslur og aukin umsvif á Íslandi og koma formlegri skipan á framtíðartengsl Norðuráls og Century Aluminum.

Samkvæmt nýju skipulagi verður Norðurál ehf. móðurfyrirtæki dótturfélaganna Norðuráls Grundartanga ehf. og Norðuráls Helguvík sf. Hlutverk Norðuráls ehf. verður að hafa yfirumsjón með hagsmunum Norðuráls og Century Aluminum á Íslandi, þar með talið viðskiptaþróun og tengsl við hluthafa á Íslandi og Kauphöll OMX á Íslandi þar sem Century Aluminum er skráð segir í tilkynningu.

Ragnar Guðmundsson er forstjóri Norðuráls og heyrir beint undir Logan Kruger, aðalforstjóra Century Aluminum. Bob Nielsen, aðstoðarforstjóri og yfirmaður lögfræði- og stjórnunarsviðs hjá Century Aluminum, er stjórnarformaður Norðuráls ehf.

Ragnar Guðmundsson hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 1997 sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og fjármálasviðs.


David Kjos, nýskipaður framkvæmdastjóri Norðuráls á Grundartanga, ber ábyrgð á daglegum rekstri álversins á Grundartanga auk þess að taka virkan þátt í uppbyggingu nýs álvers í Helguvík.

Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir að nýtt skipulag sé eðlilegt framhald af vexti félagsins undanfarin ár og framtíðaráformum. Einnig er Century Aluminum, móðurfélag Norðuráls, nú skráð í Kauphöll Íslands. ?Nýja skipulagið mætir nýjum áherslum, skerpir á ábyrgð innan félagsins og samræmist þeirri stefnu okkar að starfa í sátt við íslenskt samfélag og hagsmuni þess.?