Sigríður Lára Árnadóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Iceland Express. Hún tók við starfinu 1. febrúar síðastliðinn en hafði áður starfað sem flugkostnaðarstjóri hjá félaginu í rúmt ár segir í tilkynningu.
Lára hefur margra ára reynslu af fjármálastjórn og starfsmannamálum. Áður en hún hóf störf hjá Iceland Express starfaði hún sem skrifstofustjóri hjá flugfélaginu JetX ehf. sem hafði starfsemi sína á Ítalíu, bæði í áætlunarflugi og leiguflugi. Þar áður var hún skrifstofu- og fjármálastjóri hjá eMR Hugbúnaði hf., auk þess sem hún hefur unnið ýmis skrifstofustörf í gegnum tíðina.
Lára stundaði viðskiptanám við Byggeteknisk højskole í Danmörku og hefur tekið fjölda lengri jafnt sem skemmri námskeiða á sviði viðskipta, rekstrar og tungumála.