Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga Baugs í Bretlandi, mun framvegis hafa umsjón með öllum smásölufjárfestingum félagsins, og Skarphéðinn Berg Steinarsson, sem hafði umsjón með norrænum fjárfestingum Baugs, mun taka við öllum fjárfestingum í fasteignum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Samvæmt nýja skipuritinu mun Stefán Hilmarsson hafa umsjón með fjármálasviðinu og Sara Lind mun stýra upplýsinga- og samskiptasviðinu. Þórdís Sigurðardóttir, fyrrverandi stjórnarformaður Dagsbrúnar, tekur að sér fjárfestingar í fjölmiðlum og nýjum verkefnum (e. new ventures).

Jón Ásgeir Jóhannesson verður áfram forstjóri samsteypunnar.