Fjármálaráðherra hefur í dag ákveðið að Skúli Eggert Þórðarson, skattrannsóknarstjóri, taki við embætti
ríkisskattstjóra frá 1. janúar næstkomandi að því er segir í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.

Ákvörðun um flutning Skúla Eggerts í embætti ríkisskattstjóra er tekin á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem kveðið er á um heimild til flutnings embættismanna ríkisins milli starfa.

Skúli Eggert Þórðarson er fæddur árið 1953. Hann er lögfræðingur að mennt. Skúli Eggert var
forstöðumaður staðgreiðsludeildar og síðar tekjuskattsdeildar ríkisskattstjóraembættisins á árunum
1987-1990, vararíkisskattstjóri á árunum 1990-1993 og hefur verið skattrannsóknarstjóri frá árinu 1993.
Fjármálaráðherra hefur í dag jafnframt sett Ingvar Rögnvaldsson, vararíkisskattstjóra, til að gegna
embætti ríkisskattstjóra frá 1. október næstkomandi, er núverandi ríkisskattstjóri, Indriði H. Þorláksson,
lætur af embætti, til áramóta.