Í ljósi breytinga á eignaraðild að Icelandic Group, óskaði stjórnarformaður, Gunnlaugur S. Gunnlaugsson, eftir því á fundi stjórnar félagsins í gær að láta af því embætti, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Hann mun áfram eiga sæti í stjórn félagsins. Nýr formaður var kjörinn Magnús Þorsteinsson, sem setið hefur í stjórn félagsins frá því í október 2005. Stjórn Icelandic Group þakkar fráfarandi formanni fyrir góð störf í þágu félagsins, segir í tilkynningunni.