Íslensk erfðagreining hefur ráðið Jakob Sigurðsson sem framkvæmdastjóra viðskiptasviðs fyrirtækisins.

Í tilkynningu fyrirtækisins kemur fram að Jakob er með B.S. gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Kellogg School of Management við Northwestern University í Illinois í Bandaríkjunum. Hann hefur undanfarin tvö ár starfað sem forstjóri Alfesca, áður SÍF; alþjóðlegs matvælafyrirtækis með starfsemi á Íslandi, Bretlandi, Frakklandi og Spáni og árlega veltu upp á u.þ.b. 550 milljónir evra. Jakob gegndi áður stjórnunarstöðum hjá alþjóðlega efnafyrirtækinu Rohm and Haas í Bandaríkjunum og í Evrópu.

?Það er mér mikil ánægja að bjóða Jakob velkominn til starfa. Reynsla hans í alþjóðlegum viðskiptum mun nýtast vel við framkvæmd áætlana okkar í lyfja- og vöruþróun og aukið samstarf við aðra aðila í lyfjageiranum," sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í tilkynningu fyrirtækisins.