Fons, eignarhaldsfélag þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, á og er nú skráð fyrir tæplega 30% hlut í sænsku ferðaskrifstofunni Ticket samkvæmt nýjum hluthafalista frá sænsku kauphöllinni.

Það er því rangt að Landsbankinn eigi umræddan hlut eins og Viðskiptablaðið greindi frá með vísan til frétta í skandinavískum fjölmiðlum.

Eins og komið hefur fram keypti Fons hlutinn út úr Northern Travel Holding um miðjan ágúst og mun Landsbankinn hafa haft þar milligöngu um.

Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins mun hafa dregist af hálfu bankans að færa hlutinn á nafn Fons og hann var því skráður á nafn Landsbankans þar til fyrir skemmstu.