Fjárfestingafélag þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, Fons Eignarhaldsfélag, hefur bætt við sig 979.000 hlutum í sænska netmiðasölufyrirtækinu Ticket Travel Group. Þessu mun hafa verið flaggað í sænsku kauphöllinni en fjallað er um þetta í vefútgáfu Dagens Industri.

Þar með á Fons 3,6 milljónir hluta í Ticket en það er um 20,6 prósent af heildarhlutafé Ticket. Kaupverðið nú mun hafa verið um 19,50 sænskar kr. á hlut.

Síðast flaggaði Fons í Ticket 4. janúar en þá var félagið með 15% hlut.