Eignarhaldsfélagið Fons hefur aukið hlut sinn í sænsku netferðaskrifstofunni Ticket Travel í 28,3%, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Kaupþing í Svíþjóð hefur keypt 1,2 milljónir hluta fyrir hönd ónefndra fjárfesta, sem samsvarar um 7% af heildarhlutafé Ticket Travel. Ekki er vitað hvort að kaupin tengist fjárfestingu Fons í sænska félaginu.

Talið er að Fons, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, hafi aukið hlut sinn í Ticket Travel um 3%.