Fons Eignarhaldsfélag hf. hefur fært 303.451.940 hluti sem það á í 365 til Fons Capital AS, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Samkvæmt hluthafaskrá á Fons Eignarhaldsfélag hf. annar stærsti hluthafi 365 með 11,78% hlut.

Eftirviðskiptin á Fons Eignarhaldsfélag hf. 387.331.940 hluti í 365 og fjöldi hluta í eigu fjárhagslegra tendra aðila er 488.201.636. En Grjóti ehf. á 74.154.483 hluti í 365 og þá á Melkot hf. 26.715.214 hluti.

Talden Holding á 100% í Fons Capital AS og Fons Eignarhaldsfélag hf. á 100% í Talden Holding.