Fons hf., eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssona, hefur keypt 6,87% hlut í FL Group fyrir 10,2 milljarða króna. Gengi viðskiptanna var 16,1 samkvæmt flöggun til Kauphallarinnar.

Í dag var jafnframt tilkynnt sölu á 2,31% hlut Sólmons í FL Group. Sólmon er að fullu í eigu Materia Invest ehf., sem Magnús Ármann, Þorsteinn M. Jónsson og Kevin Standford eiga að þriðjungi hver.