Sænska netferðaskrifstofan Ticket Travel segir eignarhaldsfélagið Fons ætla að koma með tillögu um nýja stjórn félagsins.

Fons, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, jók eignarhlut sinn í Ticket Travel í 28,3% í síðustu viku. Íslenska félagið er stærsti hluthafinn í Ticket Travel.

Í tilkynningu frá sænska félaginu segir að Fons muni leggja tillögurnar fyrir hluthafa á árlegum hluthafafundi félaginsins þann 6. apríl.