Hagnaður Foodco ehf. sem rekur American Style, Eldsmiðjuna og fjölda annarra veitingastaða, jókst um 70% milli ára og nam 230 milljónum króna árið 2016. Rekstrartekjur námu tæplega 4 milljörðum króna og jukust um 10% milli ára.

Stjórn lagði til að 187,5 milljóna króna arður væri greiddur út vegna starfsemi ársins 2016. EBITA nam 304 milljónum króna og handbært fé frá rekstri 195 milljónum króna. Eignir félagsins eru metnar á 1,9 milljarða króna, eigið fé á 800 milljónir og skuldir 1,1 milljarð króna.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .