Viðskiptatímaritið Forbes fjallar ítarlega um Össur hf. [ OSSR ] í nýjasta hefti sínu í grein sem heitir Brace Yourself.

Forbes Magazine kemur út á hálfsmánaðarfresti og er eitt þekktasta tímarit sinnar tegundar í heimi, einkum vegna árlegs lista yfir ríkustu menn heims.

Andy Stone, blaðamaður Forbes, kom til Íslands til að undirbúa greinina og dvaldi hér í um vikutíma til að ræða við starfsfólk og kynna sér starfsemi Össurar hf.

http://www.forbes.com/part_forbes/2007/1112/104.html