Viðskiptatímaritið Forbes telur að Vladimír Pútín forseti Rússlands sé valdameiri en Barack Obama Bandaríkjaforseti. Pútín er í efsta sæti lista yfir valdamestu menn heims en Obama í öðru sæti.
Í þriðja sæti er Xi Jinping leiðtogi Kína. Francis páfi er í fjórða sæti og Angela Merkel kanslari Þýskalands er í fimmta sæti.
Seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Janet Yellen, er í sjötta sæti og Bill Gates stofnandi Microsoft í sjöunda. Í áttunda sæti er Mario Draghi bankastjóri Seðlabanka Evrópu.