Bandaríski bílaframleiðandinn Ford staðfesti í gær að fyrirtækið hefðið ráðið til sín ráðgjafa til að aðstoða félagið við að koma Jagúar og Land Rover, sem Ford er eigandi að, í söluferli. Að sögn fyrirtækisins eru allir valkostir uppi á borðinu í því samhengi. Ford hefur ekki enn staðfest hverjir ráðgjafar fyrirtækisins eru, en sá orðrómur hefur verið uppi undanfarna daga að bílaframleiðandinn hafi ráðið til sín Goldman Sachs og Morgan Stanley í því augnamiði að svipast um eftir hugsanlegum kaupendum á Jagúar, Land Rover og einnig Volvo.