Blaðamannafélag Íslands fordæmir aðför lögregluyfirvalda að trúnaðarsambandi blaðamanna og heimildarmanna þeirra og lýsir furðu sinni á að slíkar aðgerðir skuli teljast gjaldgengar  í upphafi 21. aldarinnar þrátt fyrir skýr ákvæði laga um vernd heimildarmanna og ákvæði stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu um tjáningarfrelsi. Þetta segir í ályktun frá stjórn Blaðamannafélags Íslands.

Þar segir að tilraunir lögregluyfirvalda til þess að draga blaðamenn fyrir dómara lýsi mikilli vanþekkingu á trúnaðarsambandi blaðamanna og heimildarmanna þeirra.  Það trúnaðarsamband sé einn af hornsteinum tjáningarfrelsisins og forsenda þess að fjölmiðlar geti sinnt aðhaldshlutverki sínu í lýðræðissamfélagi nútímans, enda augljóst að geti heimildarmaður ekki treyst fortakslausri þagmælsku blaðamanns um heimildir sínar yrðu það endalok nafnlausra heimilda og þess aðhalds sem slíkar upplýsingar veita, meðal annars stjórnvöldum á hverjum tíma.

„Blaðamannafélag Íslands treystir á að íslenskir dómstólar standi vörð um rétt blaðamanna til að halda heimildarmönnum sínum leyndum.  Geri þeir það ekki er það eftir sem áður skylda blaðamanna að virða trúnað við heimildarmenn,“ segir í tilkynningu frá stjórn Blaðamannafélagsins.