Foreldrar barns sem var á Leikskólanum 101 hafa kært til ríkissaksóknara þá ákvörðun lögreglu að fella niður rannsókn um meint harðræði starfsfólks leikskólans gegn börnum. Í bréfi sem foreldrar barna í leikskólnum fengu í síðasta mánuði kom fram að rannsókn á gögnum sem áttu að sýna harðræði gegn börnum hafi ekkert leitt í ljós sem gæti leitt til ákæru. Af þeim sökum hafi rannsókn málsins verið felld niður.

Lögmaður foreldra barnsins vildi ekki láta nafns síns getið. Hann segir að stutt sé síðan niðurstaðan var kærð.