Bertrand Kan, stjórnarformaður Símans, náði ekki kjöri í stjórn á hluthafafundi sem haldinn var í dag. Nýir inn í stjórnina koma Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða, og Kolbeinn Árnason, lögmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri SFS. Ksenia Nekrasova sem setið hafði í stjórninni gefur ekki kost á sér.
Stoðir hf. fóru fram á stjórnarkjörið. Stoðir eru í dag stærsti hluthafi Símans með 14% hluti.
Bertrand Kan hafði setið í stjórn Símans frá árinu 2016. Hann leiddi hóp fjárfesta sem keypti 5% í Símanum áður en Síminn var skráður á markað á haustmánuðum 2015. Kan tók einnig þátt í einkavæðingu Símans árið 2005, sem starfsmaður Morgan Stanley.
Stjórn Símans skipa nú:
- Bjarni Þorvarðarson
- Helga Valfells
- Jón Sigurðsson
- Kolbeinn Árnason
- Sylvía Kristín Ólafsdóttir