Þórlindur Kjartansson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í  Reykjavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórlindi en hann óskar eftir stuðningi í 4. sæti í prófkjörinu.

Þórlindur er 32 ára gamall og hefur lokið BA námi í hagfræði frá Háskóla Íslands.

Í tilkynningunni kemur fram að hann leggur áherslu á að til þess að Ísland standist samkeppni á alþjóðavísu þurfi að tryggja að landið sé bæði opið og frjálst.

„Skynsamleg nýting auðlinda, góð menntun og frumkvöðlahvetjandi umhverfi eru traustur grunnur undir endurreisn í íslensku athafnalífi,“ segir í tilkynningu frá Þórlindi.

„Séu þessi grundvallaratriði tryggð munu Íslendingar koma í veg fyrir að mikill fjöldi fólks hverfi úr landi, því hér verða forsendur góðar fyrir skjótan bata efnahagslífsins.“

Mikilvægasta hlutverk Sjálfstæðisflokksins nú, að mati Þórlinds, er að halda uppi vörnum fyrir frjálst athafnalíf og einstaklingsfrelsið í sem víðustum skilningi. Breyttar aðstæður kalla á endurskoðun ýmissa þátta í grunngerð samfélagsins, einkum fjármálaþjónustunnar. Traust á einstaklinginn, sköpunarkraft hans og atorku, er þó enn sem fyrr farsælasta leiðin til þess að skapa verðmæti og auka lífsgæði.

Þórlindur er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann var Inspector Scholae í Menntaskólanum í Reykjavík, var formaður og oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, í Háskóla Íslands og ritstjóri vefritsins Deiglan.com. Hann hefur skrifað hundruð greina um þjóðmál. Í menntaskóla skrifaði hann í félagi við Eggert Þór Aðalsteinsson metsölubækur um íþróttir.

Hann hefur verið sjálfstæður atvinnurekandi, starfað sem blaðamaður, verið ráðgjafi ráðherra og starfaði við markaðsmál og viðskiptaþróun í Landsbankanum. Hann hóf meistaranám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík sl. haust.

Þórlindur er sonur hjónanna sr. Kjartans Arnar Sigurbjörnssonar og Katrínar Þórlindsdóttur. Hann er kvæntur Ingunni H. Hauksdóttur endurskoðanda og saman eiga þau soninn Anton Hauk.