Alls voru stofnaðar 15 nýjar nefndir, stjórnir, ráð, stýri­hópar eða starfs­hópar á vegum for­sætis­ráðu­neytisins árið 2022. Þetta kemur fram í svari for­sætis­ráðu­neytisins við fyrir­spurn Bryn­dísar Haralds­dóttur, þing­manns Sjálf­stæðis­flokksins.

Bryn­dís spurði hvað voru á árinu 2022 stofnaðar margar nýjar nefndir, stjórnir, ráð, stýri­hópar eða starfs­hópar sem heyra undir ráðu­neytið og hver er á­ætlaður kostnaður vegna þeirra?

„Í sam­ræmi við orða­lag fyrir­spurnar eru ekki taldar með lög­bundnar eða ráð­herra­skipaðar nefndir sem stofnaðar voru fyrir tíma­markið en voru starfandi árið 2022 eða endur­skipaðar á árinu enda teljast þær ekki nýjar í framan­greindum skilningi,“ segir í svari ráðu­neytisins.

Á­fallinn kostnaður vegna nefndanna er 41.087.039 kr.

Þá er ekki til­greindur kostnaður vegna starfa ráð­herra, að­stoðar­manna og starfs­manna ráðu­neytisins í tengslum við nefndar­störfin. Eftir­farandi eru nýjar nefndir, stjórnir, ráð, stýri­hópar eða starfs­hópar sem stofnaðir voru á árinu 2022:

Þá er ekki til­greindur kostnaður vegna starfa ráð­herra, að­stoðar­manna og starfs­manna ráðu­neytisins í tengslum við nefndar­störfin. Eftir­farandi eru nýjar nefndir, stjórnir, ráð, stýri­hópar eða starfs­hópar sem stofnaðir voru á árinu 2022:

1. Starfshópur um endurskoðun siðareglna.
2. Stýrihópur um kynslóð jafnréttis.
3. Stýrihópur Sjálfbærs Íslands.
4. Sjálfbærniráð Íslands.
5. Nefnd um endurheimt vistkerfa og kolefnisbindingu í þjóðlendum.
6. Nefnd um undirbúning vegna kaupa á minnisvarða um eldgosið í Vestmannaeyjum.
7. Starfshópur um opinbera stefnumótun um tækifæri og áhættur á sviði stafrænna fjármála.
8. Starfshópur um hatursorðræðu.
9. Starfshópur um nauðsynlegar birgðir til þess að tryggja lífsafkomu þjóðarinnar á hættutímum.
10. Starfshópur um mótun framtíðarstefnu Barnamenningarsjóðs Íslands.
11. Starfshópur um húsnæðismál.
12. Nefnd um endurskoðun laga um ríkislögmann.
13. Nefnd um endurskoðun laga um Seðlabanka Íslands.
14. Vinnuhópur um atvinnuréttindi útlendinga.
15. Starfshópur um upplýsingastefnu stjórnvalda.

Forsætisráðuneytið tekur fram að fyrstu sex nefndirnar eru enn starfandi en aðrar hafa lokið störfum.