Eftir yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á Kaupþingi er ljóst að forsendur fyrir sameiningu Kaupþings og SPRON eru brostnar og verður því ekki um samruna fyrirtækjanna að ræða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SPRON.

Þá kemur fram í tilkynningunni að gjörbreyttar aðstæður á fjármálamörkuðum hafa neikvæð áhrif á afkomu SPRON.

„Unnið er að því að endurskipuleggja og efla rekstur SPRON með tilliti til langtímahagsmuna félagsins og gjörbreyttu umhverfi fjármálafyrirtækja,“ segir í tilkynningunni.

„Starfsemi SPRON verður óbreytt og munu starfsmenn fyrirtækisins kappkosta að þjónusta viðskiptavini sína eftir bestu getu miðað við þær aðstæður sem nú eru uppi á fjármálamörkuðum. Ríkisstjórnin hefur áréttað að innstæður í innlendum viðskiptabönkum, sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi eru tryggðar að fullu.“

Með innstæðum er átt við allar innstæður almennra sparifjáreigenda og fyrirtækja sem trygging innstæðudeildar Tryggingasjóðs innstæðueigenda tekur til.