Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hlaut í gær heiðursverðlaun bandarískrar orkustofnunar um endurnýjanlegrar orku, American Renewable Energy Institute, en hlutverk hennar er að auka nýtingu endurnýjanlegrar orku og berjast gegn loftslagsbreytingum.

Er þetta í þriðja sinn sem verðlaunin eru veitt, en áður hafa Jimmi Carter fyrrum forseti Bandaríkjanna, og Ted Turner, stofnandi CNN hlotið þau. Verðlaunin voru veitt í gær, 21. júní, sem er dagur endurnýjanlegrar orku í Bandaríkjunum.

Forseti stofnunarinnar, Sally Ranney, sagði að Ólafur Ragnar fengi verðlaunin fyrir forystu hans í að kynna sjálfbæra orku víða um heim og hvetja til aukinnar nýtingar hennar í krafti þeirrar reynslu og tækni sem Íslendingar hafa aflað sér á þessu sviði. Jafnframt væru verðlaunin veitt fyrir framlag hans til baráttunnar gegn loftslagsbreytingum.