Í dag verður forsetabifreið Sveins Björnssonar notuð í fyrsta sinn við opinbert tækifæri eftir að hún var endurgerð. Bifreiðin verður til sýnis við Þjóðminjasafnið milli kl. 14 og 17.

Forsetabifreiðin er bandarískur Packard frá 1942. Hún er í eign Þjóðminjasafns Íslands en er geymd á Bessastöðum og notuð og sýnd við sérstök tækifæri.