Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú taka á morgun, sunnudaginn 15. september, ásamt þjóðhöfðingjum annarra Norðurlanda, þátt í hátíðarhöldum í Stokkhólmi í tilefni af 40 ára krýningarafmæli Karls XVI Gústavs Svíakonungs.

Karl Gústav er 67 ára gamall og var því 27 ára þegar hann tók við konungstigninni af föður sínum. Viktoría krónprinsessa, dóttir hans og Silvíu drottningar, mun svo taka við konungstigninni í fyllingu tímans.