Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir var ekki meðal þeirra sem skiluðu inn framboði í prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík. Frestur til að skila inn framboði rann út í gærkvöld.

Ásta Ragnheiður hlaut áttunda sæti í síðasta prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir þingkosningar árið 2009. Hún hefur gegnt embætti forseta Alþingis frá árinu 2009.

Fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur þessar fregnir eftir Stefáni Benediktssyni, formanni kjörstjórnar. Ekki hefur þó náðst í Ástu Ragnheiði og því óvíst hvort hún hyggst hverfa af þingi eða sækja fram í öðru í kjördæmi. Ásta Ragnheiður hefur setið á þingi frá árinu 1995.