Skrifstofa forseta Íslands sendi rétt í þessu frá sér fréttatilkynningu þess efnis að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands boði til blaðamannafundar á Bessastöðum í dag klukkan 16:15. Ekki er greint frá tilefni blaðamannafundarins í fréttatilkynningunni.

Þegar pólitíski öldugangurinn kringum Sigmund Davíð Gunnlaugsson stóð sem hæst, rétt áður en hann sagði af sér embætti, var Ólafur Ragnar spurður að því hvort til greina kæmi að hann byði sig fram til embættis forseta á ný - en hann svaraði þeirri spurningu fremur óljóst .

Viðskiptablaðið mun fjalla nánar um blaðamannafundinn í dag.